
ELKO setti sér það markmið í upphafi að verða leiðandi verslun á sínu sviði á Íslandi. Það varð strax ljóst að þau markmið stóðust. Reglulegar markaðsrannsóknir frá Capacent sýna að árangur ELKO er afar glæsilegur og að flestir landsmenn fara helst í ELKO ef kaupa á raftæki. Er það einkum vegna hagstæðs verðs, mikils vöruúrvals, þekktra vörumerkja, góðs aðgengis og öruggrar eftirþjónustu t.d. ef viðsk.vininum líkar ekki varan þá getur hann skilað vörunni innan 30 daga* frá kaupum og fengið endurgreitt. ELKO kappkostar að vera ávallt með besta verðið á markaðinum og til að tryggja það er boðið upp á ELKO verðvernd sem liggur í því að ef sama varan er boðin ódýrari hjá samkeppnisaðila innan 30 daga frá kaupum er mismunurinn endurgreiddur auk 10% álags.
Öll bestu merkin í heimilstækjum s.s. AEG, Miele, Bosch, LG, Siemens, Gorenje, Ariston, Whirlpool, Zanussi, Electrolux, Gram, Hotpoint-Ariston, Samsung ofl. eru ávallt til sölu og úrvalið er ótrúlegt t.d. 100 tegundir af mismunandi þvottavélum, 80 tegundir að ísskápum, yfir 40 tegundir af kaffivélum svo eitthvað sé nefnt. Það er því hægt að fullyrða að ef þörf er á að kaupa raftæki er óvíða meira úrval þekktra vörumerkja á einum stað á frábæru verði (með ELKO verðvernd).
Taka skal fram að vefsíða þessi birtir stærstan hluta úr vöruúrvali ELKO þó það sé ekki tæmandi. Tilgangur vefsíðunnar er að veita viðskiptavinum upplýsingar um vörur og bjóða þeim að versla vörurnar heima í stofu. ELKO tryggir ekki að verð á vefsíðu endurspegli verð í verslun né heldur að vörur séu til á lager. ELKO.is uppfærir sig reglulega á hverjum degi. Það geta komið upp aðstæður þar sem verð og lagerstöðu ber ekki saman við verslanir. Allar upplýsingar eru birtar með fyrirvara um myndbrengl og villur í texta.
*30 daga skilaréttur gildir ekki á afþreyingu og GSM síma ef innsigli er rofið.
|
Elko ehf.
Lindum
201 Kópavogur |
Skiptiborð ELKO:
Sími: 544-4000
Myndriti: 544-4008
Aðalnetfang: elko@elko.is Símsala : 575-8115 |
Veffang: www.elko.is
Netfang: elko@elko.is Kennitala: 561000-3280 Virðisaukaskattsnúmer: 108151 ELKO ehf. er skráð í Firmaskrá Íslands ELKO er hluti af Norvik |