
Hér má finna allt sem þú þarft að vita varðandi þjónustu ELKO.
Kostir við að versla á www.ELKO.is
Langur opnunartími
Við aðlögum okkur að þínum tíma. Vefverslun ELKO er opin allan sólarhringinn, pantanir eru mótteknar alla daga, allan tíma dagsins.
Lágt verð
Markmið www.ELKO.is er að vera ódýrasta netverslun á Íslandi. Til að ná þessu er starfsfólk ELKO í stöðugum verðkönnunum hjá samkeppnisaðilum. Tugir vara eru lækkaðar í verði á degi hverjum. Þú getur líka gert þína eigin verðkönnun á auðveldan hátt, þú einfaldlega finnur vöruna á netinu hjá okkur og athugar verð samkeppnisaðila. Ekki gleyma að ELKO er með 30 daga verðvernd sem tryggir lægsta verðið.
Þægindi
Þegar þú pantar á heimasíðu ELKO þá sleppur þú við að keyra, biðraðir og bílastæðavandamál eru úr sögunni en þú heldur samt öllum kaupskilmálum s.s. skilarétt, auglýsingavernd og verðvernd. Þú færð nákvæma lýsingu á vörunni og einfaldlega pantar það sem þig langar í.
Hröð afgreiðsla
Pöntun þín fer strax í afgreiðslu. Við erum með vöruhús í hjarta Reykjavíkur sem þýðir að varan getur farið nánast samstundis af stað.
Vöruúrval
Á netinu er auðvelt er að skoða mikið magn af vörum á skömmum tíma og þú hefur “leit” til að finna það sem þig vantar. Þegar þú hefur fundið rétt hlutinn eru allar upplýsingar tengdar honum innan eins smells. Óþarfi að leita að sölumanni á netinu til að veit upplýsingar.