
Okkur í ELKO er mikið í mun að viðskiptavinir okkar séu ánægðir með þá upplifun
sem þeir eiga þegar þeir versla hjá okkur. Eitt af því sem undirstrikar metnað okkar í þessa eru eftirfarandi ánægjutryggingar sem við bjóðum upp á, 30 daga skilaréttur*, 30 daga verðvernd og 3 daga auglýsingarvernd.
*varðandi Farsíma, þá á 30 daga skilaréttur eingöngu við ef pakkning er óopnuð.
Þessi skilmáli gildir um sölu á vöru og þjónustu ELKO til neytenda.
Skilmálinn, sem staðfestur er með staðfestingu á kaupum, er grunnurinn að viðskiptunum.
Skilmálinn og aðrar upplýsingar á www.elko.is eru einungis fáanlegar á íslensku.
Um neytendakaup þessi er fjallað um í lögum um neytendakaup, lögum um samningsgerð, lögum um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu, lögræðislög og lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
Seljandi er ELKO ehf, kennitala:561000-3280, virðisaukaskattsnúmer 108151. Elko ehf. er skráð í Firmaskrá Íslands.
Kaupandi er sá aðili sem er skráður kaupandi á reikning. Kaupandi verður að vera orðinn að minnsta kosti 16 ára til að versla á www.ELKO.is
Kaupandi getur skilað vöru keyptri af seljanda innan 30 daga, valið nýja eða fengið hana endurgreidda* að fullu. Við skil á vöru þarf hún að sjálfsögðu að vera í upprunalegu ástandi ásamt umbúðum, en ekki er skilyrði að varan sé ónotuð þegar henni er skilað. Undanskilið þessari reglu eru vörur sem eiga við höfundaréttarlög eða vörur sem er með auðveldum hætti hægt að afrita eða fullnýta á 30 dögum. Þær vörur verða að hafa órofið innsigli frá seljanda (s.s. DVD, tölvuleikir o.s.frv.).
Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé í lagi, þó innan eðlilegra tímamarka.
GILDIR FYRIR ALLAR VÖRUR (nema undanskilda vöruflokka)
• Ábyrgðarskírteini, kaupnóta eða gjafamiði skilyrði fyrir vöruskilum
• *Ef valið er að fá vöru endurgreidda er skilyrið að kaupnóta sé fyrir hendi eða að kaup séu skráð á kennitölu, eingöngu er gefin inneign gegn gjafamiða.
• Ekki er skilyrði að varan sé ónotuð
• Varan þarf að vera í upprunalegu ástandi
• Rekstrarvörur sem fylgja vörunni þarf að endurnýja við vöruskil s.s. blekhylki, einnota rafhlöður, pappír o.s.frv.
• Æskilegt er að varan sé í upprunalegum umbúðum (undanskilið eru b-vörur og stór heimilistæki s.s. kæliskápar, þvottavélar, þurrkarar, frystikistur o.s.frv.)
• Algjört skilyrði er að allir aukahlutir séu með vörunni
• ELKO áskilur sér rétt til að prófa vöruna ef þörf krefur innan eðlilegra tímamarka
AÐEINS ER TEKIÐ VIÐ VÖRUM Í ÓOPNUÐUM EÐA INNSIGLUÐUM UMBÚÐUM. GILDIR FYRIR EFTIRFARANDI VÖRUFLOKKA:
• Farsímar
• DVD myndir, tölvuleikir og hugbúnaður
• Rekstrarvörur s.s. blekhylki, rafhlöður, pappír, ljósaperur o.s.frv.
• Vörur sem eru keyptar forsniðnar s.s. ákveðin lengd af snúrum
• Aðrar vörur sem hægt er að afrita eða fullnýta á 30 dögum
Ef kaupandi finnur vöru keypta af seljanda ódýrari annars staðar innan 30 daga frá reikningsdagsetningu getur hann fengið mismuninn endurgreiddan í peningum og 10% af mismuninum að auki. Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé fáanleg á umræddu verði. Þetta gildir ekki um vörur sem auglýstar eru annars staðar í takmörkuðu magni og/eða fela í sér aðra kaupskilmála.
Verðvernd gildir einungis um sömu vöru sem er boðin fram á sambærilegan hátt. Verðverndin gildir því t.d. ekki um vöru í boði í öðru landi, í fríhöfn og ef vara er seld án þjónustu/ábyrgðar. Ennfremur gildir verðvernd ekki ef verðsamanburður er milli vefverslunnar og venjulegar verslunar.
Ef vara er uppseld á meðan útgefið blað er í gildi þá útvegar seljandi hana innan þriggja vikna eða sambærilega eða dýrari vöru á sama verði. Þetta á ekki við um vörur sem auglýstar eru í "takmörkuðu magni". Vörur á vefsíðu seljanda teljast ekki til auglýstra vara, ennfremur á þetta ekki við um vörur á netverði.
Pöntun eru bindandi þegar hún er skráð á netþjón seljanda. Það gerist þegar kaupandi hefur staðfest pöntun í skrefi 3.
Seljandi er einnig bundinn til að afgreiða pöntun kaupanda svo lengi sem hún er í samræmi við vöruúrval og verðlagningu. Allar pantanir þar sem grunur um að brögð séu í tafli og/eða þar sem hugbúnaðargalli hefur áhrif eru afturkallaðar..
Kaupandi hefur rétt á að rifta kaupum samkvæmt lögum um neytendakaup, sjá nánar í grein 11.
Seljandi sendir kaupanda staðfestingu þegar pöntun er skráð, þó aðeins ef að kaupandi hefur skráð netfang sitt við kaupin. Kaupanda er bent á að kynna sér gaumgæfilega pöntunarstaðfestingu þegar hún berst. Einng ætti að ganga úr skugga um að hún sé í samræmi við fyrirhugaða pöntun.
Frávik frá pöntun og pöntunarstaðfestingu skal túlkað sem nýtt tilboð frá seljanda sem að hægt er að afþakka eða samþykkja. Kaupandi hefur einnig rétt til að láta upprunalega pöntun gilda svo lengi sem hún er í samræmi við það sem seljandi bauð upp á.
Seljandi veitir upplýsingar um vörur eftir bestu vitund hverju sinni. Seljandi birtir allar upplýsingar með fyrirvara um bilanir, vírusa, prent-, birtingar- og innsláttarvillur í texta, verðum og myndum.
Vöruúrval getur verið mismunandi milli vefverslunar og verslana.
Ennfremur áskilur seljandi sér rétt til að aflýsa í heild eða að hluta til pöntun kaupanda ef að varan er uppseld. Undir þeim kringumstæðum fær kaupandi tilkynningu ásamt upplýsingum um hvað gæti mögulega hentað í staðinn. Kaupandi fær þá möguleika á að samþykkja þá tillögu eða aflýsa pöntun í heild sinni.
Verð eru á stöðugum breytingum hjá seljanda vegna samkeppni og verðbreytinga birgja. Verðhækkanir sem verða eftir pöntun viðskiptavinar eru ekki afturkræfar. Það verð gildir sem var í gildi þegar pöntun var gerð og kemur fram á pöntunarstaðfestingu..
Heildarkostnaður er tekinn fram áður en kaupandi staðfestir pöntun endanlega(skref 3 í vefverslun). Þar er tekinn fram allur kostnaður við pöntun s.s. þjónustu, sendingu o.s.frv. Aðeins sértilfelli geta haft með sér aukakostnað eftir pöntunarstaðfestingu. Sem dæmi má nefna eru bilanir, vírusar, prent-, birtingar- og innsláttarvillur í texta, verðum og myndum.
Netverð gildir aðeins þegar vara er keypt í Vefverslun. Almennt verð sem gildir í verslunum Elko er birt yfir ofan netverðið.
Hægt er að inna greiðslu af hendi með bankamillifærslu, greiðslukorti eða skuldfærslu á viðskiptareikning. Ef greitt er með greiðslukorti eða skuldfærslu á viðskiptareikning er upphæðin skuldfærð við afgreiðslu pöntunarinnar af lager. Ef greiðsla berst ekki, áskilur seljandi sér rétt til að aflýsa pöntuninni. Ef greitt er með bankamillifærslu eru vörur fráteknar á lager þar til greiðsla berst. Vörur eru fráteknar í 1 dag með tilliti til frídaga, ef millifærsla berst ekki innan þess tíma er pöntun aflýst.
Vandamál með viðskipti tengd viðskiptareikningi falla undir skilmála reiknings.
Afhending telst vera innan eðlilegra tímamarka frá útgáfudegi reiknings. Tekið er fram í kaupferlinu hverju má búast við miðað við valda sendingarleið. Seljandi afhendir vörur einungis innan Íslands.
Ef afhendingu seinkar mun seljandi tilkynna það til kaupanda ásamt upplýsingum um hvenær pöntunin verður tilbúin til afhendingar eða bjóða staðgengilsvörur ef að varan er uppseld.
Pósturinn: Allar pantanir yfir kr. 20.000 krefst undirskriftar korta/reikningseiganda gegn framvísun persónuskilríkja þ.e. passa eða ökuskírteinis. Pantanir undir kr. 20.000 eru afhentar aðila á afhendingarstað . Ef að enginn er við er tilkynning stungið inn um bréfalúgu ef kostur er.
Allar skemmdir á vörum af hendi flutningsaðila eru á þeirra ábyrgð og að fullu bætt gagnvart viðskiptavin. Skemmdir eftir að vara hefur verið afhent er á ábyrgð kaupanda.
Ef að afhending vöru í heimakstri reynist árangurslaus er hægt að óska eftir nýjum afhendingartíma gegn gjaldi sem greitt er beint til póstsins.
Sækja í verslun: Hægt er að sækja vöru í verslun Lindum eða vöruhús Bakka ef vara er geymd þar, ef greiðslumáti er Kreditkort, raðgreiðslur eða viðskiptafært þarf að koma fyrst í Elko Lindir og sækja afhendingarseðil gegn undirskrift og framvísun skilríkja. Allar pantanir yfir kr. 20.000 krefst undirskriftar korta/reikningseiganda gegn framvísun persónuskilríkja þ.e. passa eða ökuskírteinis
Ef óskað er eftir að geyma vöru í vöruhúsi ELKO er geymslutími miðaður við 2 vikur, ef óskað er eftir að geyma vöru lengur en það er krafist mánaðarlegt geymslugjalds sem um nemur 5% af upphæð vörunnar.
Eftir að kaupandi hefur móttekið pöntunina þarf hann að kanna hvort hún sé í samræmi við pöntunarstaðfestinguna, hvort eitthvað hafi skemmst í flutningi og að allar vörur séu samvkæmt vörulýsingu og ógallaðar.
Skilmálar þessir gera ráð fyrir að kaupandi hafi lesið og kynnt sér leiðbeiningar og/eða handbók sem fylgja keyptri vöru við afhendingu,.
Eðlilegur athugunartími viðskiptavinar telst vera innan 30 daga. Eftir 30 daga áskilur seljandi sér rétt til að sannreyna staðhæfingu kaupanda innan eðlilegra tímamarka áður en leyst er úr umkvörtunarefni kaupanda. Í flestum tilfellum felur það í sér athugun hjá viðurkenndum þjónustuaðila.
Afþreyingarefni er undanskilið 30 daga athugunartíma. Seljandi ráðleggur kaupanda afþreyingarefnis að athuga hvort geisladiskar hafi losnað í pakkningum í flutningum. Þetta getur komið upp vegna lélegra hulstra og veldur rispum á diskum. Ef að ELKO metur að rispurnar séu vegna flutnings getur kaupandi skipt slíkum vörum umsvifalaust út sé þeim skilað eða tjónið tilkynnt innan 2 daga frá móttöku kaupanda. Seljandi áskilur sér rétt til að hafna beiðni um vöruskil umfram þann tíma hafi innsigli verið rofið.
Ef að varan er gölluð eða það vantar eitthvað í vöruna er seljanda skylt að bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Það fer eftir atvikum hvaða leið er valin hverju sinni.
Tilkynning á galla verður að berast munnlega eða skriflega. Mælt er með að tilkynningin berist innan 30 daga frá því galli uppgötvast. Vegna skráningargildis er mælt með að að kaupandi sendi tölvupóst um gallann og geymi afrit. Seljandi sendir staðfestingu til baka um móttöku tölvupóstsins.
Réttur til að fá galla bættan er í 2 ár. Réttur til að kvarta er 5 ár, þó aðeins á vörum sem eru með viðurkenndan meðallíftíma umfram 2 ár.
Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé gölluð, þó innan eðlilegra tímamarka.
Um galla á afþreyingarvörum s.s. DVD og tölvuleikjum er algjört skilyrði að miðillinn sem efnið er á sé hreinn og órispaður. Seljandi fríar sig allri ábyrgð ef miðill er skemmdur eða rispaður.
Ábyrgðir seljanda hafa ekki í för með sér takmarkanir á rétti sem á er kveðið um í lögum um neytendakaup. Ábyrgð vegna galla á vöru er 2 ár eftir kaupdagsetningu. Ef um ræðir sölu á vöru til fyrirtækis er ábyrgð á galla 1 ár samkvæmt neytendalögum og lögum um lausafjárkaup. Ef söluhlut er ætlaður verulega lengri líftími en almennt gerist þá er frestur til að kvarta 5 ár.
Ábyrgð er ekki staðfest nema að kaupnótu sé framvísað.
Ábyrgðin nær ekki til eðlilegs slits tækis eða notkunar á rekstrarvörum þ.e.a.s. hún nær ekki til tækja sem eðlilegt þykir að endist skemur en 2 ár. Til að mynda er rafhlaða fartölva rekstrarvara og getur þurft að endurnýja fyrir lok vélbúnaðar ábyrgðar. Fartölvu framleiðandi veitir þó 12 mánaða ábyrgð óháð notkun á rafhlöðum. Eðlilegt er að endurnýjun getur átt sér stað bilinu 1-2 ár. Ábyrgð fellur úr gildi ef tækið hefur verið opnað eða átt hefur verið við það án yfirumsjónar/samþykkis seljanda þrátt fyrir að þar hafi verið að verki verkstæði og/eða viðurkenndur aðili. Ábyrgðin fellur einnig niður ef rekja má bilun til illrar eða rangrar meðferðar og er kaupanda bent á að lesa gaumgæfilega leiðbeiningar eða handbók skvt. 10. grein þessa skilmála. Ekki er ábyrgð á hugbúnaði eða öðrum óáþreifanlegum hlutum.
Í sumum tilfellum eru einstakar vörur eða vörumerki með lengri ábyrgðartíma. Í þeim tilfellum sem það á við er slíkt tekið fram.
Seljandi er ekki skuldbundinn til að taka þátt í viðgerðarkostnaði, gefa afslætti, skipta út vöru o.s.frv. eftir 2 ára ábyrgðartíma.. Seljandi þarf þó að taka tillit til 5 ára kvörtunarfrests ef meðallíftími tækis er ætlaður verulega lengri en almennt gerist.
Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að galli eða bilun heyri undir ábyrgðarskilmála, þó innan eðlilegra tímamarka. Ef að til úrlausnar ábyrgðar kemur, er seljanda skylt að bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Það fer eftir atvikum hvaða leið er valin hverju sinni.
Kaupanda er sérstaklega bent á viðbótartryggingar sem í boði eru í verslunum ELKO til að forðast háan viðgerðarreikning eða jafnvel endurnýjun tækis ef að eitthvað skyldi koma upp á. Upplýsingar um viðbótatryggingar má sjá hér.
Seljandi og kaupandi semja sérstaklega um viðbótatryggingu og þarf að taka það sérstaklega fram á reikning.
Farið er með allar persónuupplýsingar sem seljandi móttekur sem algjört trúnaðarmál og þær aðeins nýttar í þeim tilgangi að klára viðskiptafærslu.
Kaupanda gefst hins vegar kostur á að fá send tilboð í tölvupósti og mun seljandi þá aðeins nota þær upplýsingar sem til þess þarf s.s. póstfang.
Seldar vörur eru eign seljanda þar til kaupverð er að fullu greitt.
Reikningsviðskipti, greiðslur með ávísunum eða önnur lánaform afnema ekki eignarétt seljanda fyrr en full greiðsla hefur borist.
Ávallt skal reyna að leysa öll mál á sem einfaldastan hátt. Ef það er ekki mögulegt er hægt að bera málið undir Kærunefnd þjónustu og lausafjárskaupa sem hýst er af Neytendastofu.. Sem síðasta úrræði er hægt að fara með málið fyrir dómstóla. Það skal gera í íslenskri lögsögu og í lögsagnarumdæmi seljanda .
Kaupanda er bent á að senda tölvupóst með öllum þeim upplýsingum er varða kaupin á elko@elko.is til að fá úrlausn á því sem hann vantar. Kaupandi getur einnig leitað í verslun ELKO til að fá svör eða einfaldlega hringt í aðalsíma ELKO þar sem honum verður vísað á réttan stað.