ELKOELKO
ELKOELKO

Skilmálar ELKO

Skilmálarnir hér að neðan gilda um kaup neytenda á vöru og þjónustu ELKO.

Meginupplýsingar viðskiptaskilmála ELKO

Viðskiptaskilmálar ELKO gilda um sölu á vöru og þjónustu ELKO til neytenda. Neytandi samþykkir umrædda skilmála við kaup og mynda þeir grundvöll viðskiptanna.

Um viðskipti samkvæmt skilmálum þessum gilda íslensk lög, þar á meðal lög um neytendakaup nr. 48/2003, lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 og lög rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu nr. 30/2002.

1. Skilgreiningar

Seljandi er ELKO ehf., kennitala: 561000-3280, virðisaukaskattsnúmer 108151. ELKO ehf. er skráð í  fyrirtækjaskrá.

Kaupandi er sá aðili sem er skráður kaupandi á reikning. Kaupandi verður að vera orðinn að minnsta kosti 18 ára til að versla í Vefverslun ELKO.

2. 30 daga skilaréttur

Kaupandi getur skilað vöru sem keypt er af seljanda innan 30 daga, valið nýja vöru eða fengið hana endurgreidda að fullu, nema þegar um er að ræða vörur keyptar á tollfrjálsu svæði í ELKO Flugstöð, sjá nánar í lið 2.4.

Sé kaup á vöru fjármögnuð með láni fer endurgreiðsla fram með niðurfellingu láns, en ekki með útgreiðslu inn á bankareikning kaupanda. Hafi kaupandi greitt hluta lánsins við endurgreiðslu skal sá hluti endurgreiddur til kaupanda, sjá nánar lið 2.5.


Við skil á vöru þarf hún að vera í upprunalegu ástandi*. Ekki er skilyrði að varan sé ónotuð, að undanskildum þeim vöruflokkum sem tilgreindir eru í lið 2.2. hér að neðan. 

Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé í upprunarlegu ástandi innan eðlilegra tímamarka.

Seljandi áskilur sér jafnframt rétt til þess að koma í veg fyrir alla misnotkun á 30 daga skilarétti.

 

2.1 Nánar um skilmála vöruskila
(að undanskildum vörum í lið 2.2 og 2.3):

•               Ábyrgðarskírteini, kaupnóta eða gjafamiði þurfa að fylgja vöruskilum

•               Varan skal vera í upprunalegu ástandi* en ekki er skilyrði að varan sé ónotuð.

•               Æskilegt er að varan sé í upprunalegum umbúðum, á þessu eru gerðar undantekningar ef um Tækifærisvöru er um að ræða eða stór heimilistæki.

•               Rekstrarvörur sem fylgja vörunni þarf að endurnýja við vöruskil s.s. blekhylki, einnota rafhlöður, pappír o.s.frv.

•               Allir aukahlutir vörunnar verða að fylgja við skil.

•               ELKO áskilur sér rétt til að prófa vöruna, ef þörf krefur, innan eðlilegra tímamarka.

•               Endurgreiðsla getur lækkað ef breytingar verða til lækkunar á aðflutningsgjöldum, virðisaukaskatti eða öðrum álögum sem opinberir aðilar leggja á.

 

2.2 Vörur með takmarkaðan skilarétt, þ.e. vörur í óopnuðum eða innsigluðum umbúðum:

•               Farsímar,

•               Playstation leikjatölvur,

•               LEGO og púsl,

•               Rekstrarvörur, blekhylki, rafhlöður, pappír, ljósaperur o.s.frv,

•               Vörur sem eru keyptar forsniðnar, t.d. ákveðin lengd af snúrum,

•               Tövluleikir, plötur og hugbúnaður,

•               Aðrar vörur sem hægt er að afrita eða fullnýta á 30 dögum.

 

 

2.3 Skilaréttur á unaðsvörum

Hefðbundinn 30 daga skilaréttur er á flestum unaðstækjum. Ef viðskiptavinur vill skila slíkri vöru þarf varan að vera hrein og í upprunalegu ástandi. Æskilegt að tæki sé í upprunalegum umbúðum. Ef upprunalegar umbúðir eru ekki til skal skila vörunni í innsigluðum poka.

ELKO sér til þess að tækið fari í ábyrga förgun. Unaðsvörur fara ekki í endursölu sem Tækifærisvörur.

 

2.4 Vörur keyptar á tollfrjálsu svæði í ELKO Flugstöð

Sé vara keypt í ELKO Flugstöð þá fæst einungis inneign en ekki endurgreiðsla, þar sem varan er seld á tollfrjálsu svæði.


*Nánar um upprunalegt ástand sbr. 2.1Vara telst ekki vera í upprunalegu ástandi í skilningi reglna þessara ef hún er læst með aðgangssstýringu, svo sem með Find My iPhone eða öðrum sambærilegum öryggiskerfum. Seljandi áskilur  sér allt að fimm virka daga til skoðunar og yfirferðar á vöru sem kann að vera haldin slíkri aðgangsstýringu við skil hennar. Endurgreiðsla við vöruskil í slíku tilviki fer fram þegar staðfesting á upprunalegu ástandi vörunnar liggur fyrir af hálfu seljanda. Þá áskilur seljandi sér rétt til að hafa uppi endurkröfu á hendur kaupanda ef aðgangsstýring á skilavöru reynist vera fyrir hendi eftir að endurgreiðsla af hálfu seljanda hefur verið innt af hendi til kaupanda.

 

2.5  Skil á vörum sem keyptar eru með láni eða greiðsludreifingu

Ef vara hefur verið keypt með láni eða greiðsludreifingu fer endurgreiðsla við skil á vöru fram með niðurfellingu láns eða lækkun viðkomandi láns. Óheimilt er að endurgreiða lánsfjárhæð inn á greiðslukort, bankareikning eða með öðrum hætti á meðan lánasamningur er enn í gildi. Hafi viðskiptavinur þegar greitt eina eða fleiri afborganir, getur sú fjárhæð verið endurgreidd að því marki sem hún hefur verið greidd.

Ef aðeins hluta af kaupum er skilað, lækkar höfuðstóll lánsins sem nemur verðmæti þeirrar vöru sem skilað er.  ELKO áskilur sér rétt til að hafna endurgreiðslu með öðrum hætti en hér greinir.

Við sérstakar aðstæður, svo sem þegar gjöf sem fjármögnuð var með láni er skilað af þriðja aðila, kann endurgreiðsla að fara fram með inneignarnótu samkvæmt nánara mati ELKO.

Grunur um misnotkun eða sviksamlega háttsemi kann að leiða til þess að viðskipti verði stöðvuð og tilkynnt til lögreglu.

 

3. Verðöryggi ELKO

ELKO býður viðskiptavinum sínum upp á verðöryggi, þ.e. ef kaupandi finnur sömu vöru og hann keypti ódýrari í ELKO innan 30 daga frá kaupum getur kaupandi fengið mismuninn endurgreiddan. Verðöryggi gildir einungis um vörur keyptar í ELKO.

Mismunurinn er endurgreiddur með millifærslu í banka eða bakfærslu á kreditkort eða greiðsluláni þegar við á.

 

Ábyrgðarskírteini eða kaupnóta er skilyrði verðöryggis. Þá er skilyrði er að varan sé til í verslunum ELKO. Verðöryggi tekur ekki til vara í boði á tollfrjálsu svæði í verslun ELKO í Flugstöðinni.

 

Viðskiptavinur hefur 30 daga til að gera kröfu til endurgreiðslu vegna verðöryggis. Fresturinn miðast við dagsetningu upprunalegrar kaupnótu. Þjónustuver ELKO annast endurgreiðslur til viðskiptavina vegna verðöryggis. Kaupandi skal senda tölvupóst á elko@elko.is með kennitölu og bankaupplýsingum.

 

Verðöryggi gildir ekki ef um er að ræða verðbreytingar vegna breytinga í aðflutningsgjöldum, virðisaukaskatti eða öðrum álögum sem opinberir aðilar leggja á.

 

 

5. Pöntun

5.1. Staðfesting pöntunar er bindandi

Þegar kaupandi hefur staðfest pöntun í kaupferli vefverslunar og pöntun jafnframt verið skráð í netþjón seljanda telst pöntun bindandi fyrir báða aðila. Seljandi er bundinn til að afgreiða pöntun kaupanda svo lengi sem hún er í samræmi við vöruúrval og verðlagningu seljanda.

Seljandi sendir kaupanda staðfestingu þegar pöntun er skráð, þó aðeins ef að kaupandi hefur skráð netfang sitt við kaupin. Kaupandi skal kynna sér pöntunarstaðfestingu þegar hún berst og ganga úr skugga um að hún sé í samræmi við fyrirhugaða pöntun.


5.2. Frávik í pöntun

Frávik frá pöntun og pöntunarstaðfestingu skal túlka sem nýtt tilboð frá seljanda sem kaupandi getur samþykkt eða hafnað. Kaupandi hefur einnig rétt til að láta upprunalega pöntun gilda svo lengi sem hún er í samræmi við það sem seljandi bauð upp á og vara sé til. Seljandi er ekki bundinn því að afhenda vörur ef um villu er að ræða sem leiðir af bilunum, prentvillum, birtingarvillur og/eða innsláttarvillum í texta, verðum og myndum.

 

Vöruúrval getur verið mismunandi á milli vefverslunar og verslana. Seljandi veitir upplýsingar um vörur eftir bestu vitund hverju sinni. Seljandi birtir allar upplýsingar með fyrirvara um bilanir, vírusa, prent-, birtingar- og innsláttarvillur í texta, verðum og myndum.

 

5.3. Aflýsing pöntunar

Seljandi áskilur sér rétt til að aflýsa í heild eða að hluta til pöntun kaupanda ef að varan er uppseld. Við slíkar aðstæður fær kaupandi tilkynningu þess efnis. Seljandi kann að bjóða kaupanda upp á sambærilega vöru til kaupa sem til er á lager. Kaupandi fær þá möguleika á að samþykkja þá tillögu eða aflýsa pöntun í heild sinni.

 

Allar pantanir sem grunur leikur á að tengist svikum og/eða verða fyrir áhrifum af hugbúnaðarvillu verða afturkallaðar og er seljandi ekki bundin að afgreiða slíka pöntun.

6. Verð

Verð geta tekið breytingum hjá seljanda vegna verðbreytinga birgja og vegna samkeppni. Verðhækkanir sem verða til eftir pöntun viðskiptavinar eru ekki afturvirkar. Það verð gildir sem var í gildi þegar pöntun var gerð og kemur fram á pöntunarstaðfestingu. Í kaupferli er tekinn fram heildarkostnaður við pöntun sem kaupandi staðfestir.

 

Aðeins í undantekningar tilvikum getur stofnast til aukakostnaðar eftir pöntunarstaðfestingu, þ.e. ef um bilanir, vírusa, prentvillur, birtingarvillur og innsláttarvillur í texta, verðum og myndum eiga við. Í þeim tilvikum er kaupanda tilkynnt um slíkt og  hefur þá kaupandi möguleika á að samþykkja þá tillögu eða aflýsa pöntun í heild sinni.

Seljandi skal sérstaklega taka fram ef um takmarkað magn er á vöru á tilboði og hversu mörg eintök standa til boða. Ef það kemur ekki fram skuldbindur seljandi sig að eiga vöruna til sölu á tilboðstímabilinu. Þetta á ekki við útsölu eða rýmingarsölu þegar tilgangur verðlækkunar er að losa vöruna úr sölu.

7. Greiðsla

Hægt er að inna greiðslu af hendi með bankamillifærslu, greiðslukorti, skuldfærslu á viðskiptareikning eða neytendaláni, eftir því sem við á hverju sinni. Ef greitt er með greiðslukorti eða skuldfærslu á viðskiptareikning er upphæðin skuldfærð við afgreiðslu pöntunarinnar af lager. Ef greiðsla fyrir vefpöntun berst ekki innan 1 klukkustund, áskilur seljandi sér rétt til að aflýsa pöntuninni. Ef greitt er með bankamillifærslu er pöntun sett í tiltekt þegar millifærsla hefur verið staðfest af starfsmanni.


Vandamál með viðskipti tengd viðskiptareikningi falla undir skilmála viðkomandi reiknings.

 

7.1 Reglur um reiðufjárviðskipti vegna aðgerða gegn peningaþvættis

ELKO tekur ekki við reiðufé umfram 500.000 kr. í einu og sömu viðskiptunum.

Reiðufjárviðskipti yfir 50.000 kr. eru ávallt skráð á kennitölu viðskiptamanns og framvísa persónuskilríkjum.

Endurgreiðslur eru ávallt skráðar á kennitölu viðskiptamanns og framkvæmdar með millifærslu inn á bankareikning eða með bakfærslu á það greiðslukort sem notað var við kaup, eftir því sem við á.

 

7.2 Áreiðanleikakannanir

Í samræmi við lög nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka framkvæmir ELKO áreiðanleikakannanir í eftirfarandi tilvikum, eftir því sem við á:

·         Við upphaf viðskiptasambands.

·         Við einstök viðskipti að fjárhæð 15.000 evrur eða meira.

·         Við millifærslur fjármuna að fjárhæð 1.000 evrur eða meira.

·         Við reiðufjárviðskipti að fjárhæð 10.000 evrur eða meira.

·         Við útgreiðslu vinninga að fjárhæð 2.000 evrur eða meira.

·         Við viðskipti með sýndareignir að fjárhæð 1.000 evrur eða meira.

·         Þegar grunur leikur á peningaþvætti eða fjármögnun hryðjuverka.

·         Gildir hvort sem um er að ræða eina færslu eða fleiri tengdar færslur.

Áreiðanleikakönnun getur meðal annars falið í sér:

·         Staðfestingu á auðkenni viðskiptamanns.

·         Staðfestingu á raunverulegum eiganda, þegar um lögaðila er að ræða.

·         Mat á því hvort viðskiptamaður teljist í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla (PEP).

·         Skimun gegn alþjóðlegum þvingunarlistum.

·         Aðra upplýsingaöflun í samræmi við gildandi lög, reglur og verklag ELKO.

ELKO áskilur sér rétt til að óska eftir nauðsynlegum upplýsingum og gögnum frá viðskiptamanni vegna áreiðanleikakönnunar. Séu slíkar upplýsingar eða gögn ekki veitt, eða ef ástæða er til samkvæmt lögum eða verklagi ELKO, getur ELKO hafnað viðskiptum, stöðvað afgreiðslu eða gripið til annarra lögbundinna ráðstafana.

 

8. Afhending og seinkun

Afhending telst vera innan eðlilegra tímamarka frá útgáfudegi reiknings. Í kaupferli kemur fram við hvaða afhendingartíma má búast við miðað við valda afhendingarleið. Seljandi afhendir vörur einungis innan Íslands. Ef afhendingu seinkar mun seljandi tilkynna það til kaupanda ásamt upplýsingum um hvenær pöntunin verður tilbúin til afhendingar.

 

Ef óskað er eftir að geyma ósótta vöru í vöruhúsi ELKO er geymslutími að hámarki 2 vikur, ef óskað er eftir að geyma vöru lengur en það er krafist mánaðarlegt geymslugjalds sem um nemur 5% af upphæð vörunnar.

 

9. Yfirferð á vörum

Skilmálar þessir gera ráð fyrir að kaupandi hafi lesið og kynnt sér leiðbeiningar og/eða handbók sem fylgja keyptri vöru við afhendingu. Eftir að kaupandi hefur móttekið pöntun þarf hann að kanna hvort hún sé í samræmi við pöntunarstaðfestingu, hvort eitthvað hafi skemmst í flutningi og hvort allar vörur séu samkvæmt vörulýsingu. Eðlilegur athugunartími viðskiptavinar telst vera 30 dagar. Eftir 30 daga áskilur seljandi sér rétt til að sannreyna staðhæfingu kaupanda innan eðlilegra tímamarka áður en leyst er úr umkvörtunarefni kaupanda. Í flestum tilfellum felur það í sér athugun hjá viðurkenndum þjónustuaðila.

  

10. Réttur við galla eða vöntun

Réttur neytenda til úrbóta vegna galla fer samkvæmt ákvæðum laga um neytendakaup nr. 48/2003.

 

Komi í ljós að vara sé gölluð eða að eitthvað vanti í hana skal kaupandi tilkynna seljanda um það án ástæðulauss dráttar. Tilkynning getur verið munnleg eða skrifleg, þó er mælt með að hún sé send skriflega. Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna meintan galla eða vöntun innan eðlilegs tíma frá móttöku tilkynningar. Reynist galli vera til staðar mun seljandi, eftir atvikum, bjóða viðgerð, afhenda nýja vöru eða veita afslátt af kaupverði eða endurgreiðslu. Val úrræðis fer eftir eðli máls hverju sinni.

 Seljandi ber ekki ábyrgð á göllum sem rekja má til rispa eða annarra skemmda sem kunna að koma til eftir afhendingu vöru.

 Tækifærisvörur, sýningareintök og vörur með útlitsgalla eru seldar sem einstök eintök. Við úrlausn ábyrðgar vegna slíkra vara er boðin inneignarnóta eða endurgreiðsla.

 

11. Ábyrgð

Ábyrgð seljanda samkvæmt skilmálum þessum skerðir ekki lögbundin réttindi neytenda samkvæmt lögum um neytendakaup nr. 48/2003. Með neytenda er átt við einstakling sem kaupur vöru utan atvinnustarfsemi sinnar. Reynist vara haldin galla sem fellur undir ábyrgð skal seljandi, eftir atvikum og í samræmi við ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003, bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru, afslátt af kaupverði eða riftun kaupsamnings. Val á úrræði fer eftir eðli galla, umfangi hans og öðrum atvikum hverju sinni.

 

Skilyrði fyrir því að ábyrgð sé tekin til greina er að kaupandi framvísi gildri kaupnótu eða öðrum fullnægjandi sönnunargögnum um kaup. Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að meintur galli eða bilun falli undir ábyrgðarskilmála, enda fari slík athugun fram innan eðlilegra tímamarka.

 

11.1. Tímalengd ábyrgðar

Almennur kvörtunarfrestur samkvæmt lögum um neytendakaup er tvö ár frá afhendingu vöru. Í þeim tilvikum þar sem framleiðandi eða seljandi býður lengri ábyrgðartíma á tilteknum vörum eða vörumerkjum skal slíkt sérstaklega tekið fram í vörulýsingu eða ábyrgðarskilmálum viðkomandi vöru. Ábyrgð vegna galla á vöru miðast við kaupdagsetningu samkvæmt lögum um neytendakaup nr. 48/2003. Sé vara seld til lögaðila eða einstaklings í atvinnurekstri fer um ábyrgð samkvæmt lögum um lausafjárkaup nr. 50/2000, nema annað sé sérstaklega tekið fram. Kvörtunarfrestur vegna galla í slíkum viðskiptum er eitt ár frá afhendingu vöru. 

 

11.1. Takmörkun á ábyrgð

Ábyrgð tekur ekki til eðlilegs slits eða rýrnunar sem leiðir af venjubundinni notkun vörunnar, né til rekstarvara eða íhluta sem ætla má að hafi takmarkaðan endingartíma. Rafhlöður teljast rekstarvörur og kunna að þarnast endurnýjunar áður en til ábyrgðartíma vörunnar lýkur. Framleiðandi veitir þó að lágmarki 6 mánaða ábyrgð á rafhlöðum, enda sé sýnt fram á að um framleiðslugalla sé að ræða en ekki eðlilegt slit eða rýrnun vegna notkunar. Eðlilegt getur talist að ending rafhlaðna sé á bilinu 6-24 mánuðir, eftir notkun og meðferð.

 

Ábyrgð fellur niður ef tækið hefur verið opnað og átt við það, án yfirumsjónar og/eða samþykkis seljanda. Sama á við ef bilun eða galli verður rakinn til rangrar notkunar, vanrækslu vöru, utanaðkomandi áhrifa eða meðferðar sem ekki samræmis leiðbeiningum framleiðanda eða seljanda.

 

Ábyrgð nær ekki til hugbúnaðar, gagna eða óáþreifanlegra þátta, þar á meðal vírusa eða annarra atriða sem ekki verða rakin til framleiðslugalla eða ábyrgðar seljanda.

 

Að loknum ábyrgðartíma er seljanda ekki skylt að taka þátt í viðgerðarkostnaði, endurnýjun vöru, afslætti eða öðrum úrræðum vegna bilana eða galla.

 

12. Persónuvernd

Persónuupplýsingar sem seljandi móttekur í tengslum við viðskipti eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og unnar í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, auk reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/679 (GDPR), eftir því sem við á. Upplýsingarnar eru eingöngu notaðar í þeim tilgangi að efna samningssamband aðila, veita þjónustu og uppfylla lögbundnar skyldur seljanda.

 

Kaupandi getur samþykkt að fá send tilboð, markaðsefni og annað kynningarefni með rafrænum hætti. Í slíkum tilvikum notar seljandi einungis þær persónuupplýsingar sem nauðsynlegar eru í þeim tilgangi, svo sem netfang kaupanda og nafn. Kaupandi getur hvenær sem er afturkallað samþykki sitt fyrir slíkri markaðssetningu.

 

Nánari upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga og notkun vafrakaka má finna í persónuverndarstefnu og vafrakökustefnu ELKO.

 

13. Úrlausn vafamála

Rísi ágreiningur milli kaupanda og seljanda skal leitast við að leysa málið með samkomulagi og á eins skjótan og einfaldan hátt og unnt er.

 

Takist ekki að ná samkomulagi getur neytandi, eftir því sem við á, lagt ágreininginn fyrir Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa, sbr. lög nr. 81/2019 um úrskurðaraðila í neytendamálum. Úrskurðir nefndarinnar eru ekki bindandi fyrir aðila nema þeir samþykki annað sérstaklega.

 

Verði ágreiningur ekki leystur með samkomulagi eða fyrir kærunefnd getur hvor aðili um sig vísað málinu til dómstóla. Um skilmála þessa og viðskipti samkvæmt þeim fer samkvæmt íslenskum lögum.

 

Mál sem kunna að rísa vegna skilmála þessara skulu rekin fyrir Héraðsdómi Reykjaness.

Stafrænn ráðgjafi ELKO