Samstarf Elko og Grænnar framtíðar
Í því neyslusamfélagi sem við búum í er gríðarlegt magn af nýjum raftækjum tekið í notkun ár hvert-til dæmis endurnýtir fólk farsíma á 18 mánaða fresti. Tækin eru af ýmsum stærðum og gerðum allt frá MP3 spilurum, fartölvum og farsíma til flatskjáa. Mest af þeim tækjum sem fólk hættir að nota, þegar ný tæki eru tekin í notkun, er hent á haugana og svo hefur verið um árabil.
Tæki sem eru gömul og ónýt eru að einhverju leyti send í endurvinnslu en í fjölmörgum tilvikum eru þau einfaldlega send í bræðslu og það sem verra er enda sem hluti af landfyllingu. Þannig eru meiri líkur á að spilliefni endi í umhverfinu og um leið glatast mikil verðmæt. Sem dæmi má nefna að heimurinn framleiðir um 20-50 milljón tonn af rafrænum úrgangi á ári hverju, að sögn Sameinuðu þjóðanna.
Hvað er endurnýting?
Endurnýting snýst um að gera við hluti eða nýta virka parta til þess að gera annan hlut virkan. Með endurnýtingu á raftæki er hægt að fá heilt raftæki með litlum kostnaði því það þarf ekki að búa til glænýtt tæki. Til dæmis er hægt að skipta um skjái eða setja nýja rafhlöðu í tæki svo að þau virki eins og áður. Þetta á við um MP3 spilara, stafrænar myndavélar, fartölvur og fleiri tæki. Mikilvægt er að huga að því að við framleiðslu á hverju tæki er gengið á afurðir jaðar og því mikilvægt að nýta allan þann búnað sem við getum.
Samstarf Elko og Grænnar framtíðar
Elko hefur í samvinnu við Græna framtíð endurnýtt öll gömul, ónýt og gölluð smáraftæki. Öll viðgerð á raftækjum á sér stað hjá vottuðum fyrirtækjum í iðnríkjum þar sem tæki eru prófuð og seld, oft til þróunarlanda. Þar koma slík tæki að góðum notum þar sem ódýrara er að kaupa endurunnin tæki. Í mörgum tilvikum koma endurnýttir farsímar og tölvur að notum við uppbyggingu og eflingu á innviðum samfélaga þróunarríkja. Endurnýting fyrir þróunarríki er því jákvætt framlag iðnríkja í stað þess að senda úrgang til þess heimshluta eins og gert hefur verið um árabil.
Hvað er endurnýtt úr raftækjum?
Þeir farsímar sem eru skemmdir og ekki er hægt að endurnýta nýtast engu að síður því í þeim er að finna margvísleg verðmæt efni sem hægt er að nota við framleiðslu á öðrum búnaði. Í farsímum er að finna lítið magn af hvítagulli, silfri, gulli og kopar sem hægt er að nýta í skartgripi eða jafnvel í aðra farsíma. Það sama á við um ýmis önnur tæki, svo sem fartölvur og myndavélar, en í þeim eru mikið af búnaði og hlutum sem hægt er að nýta þó svo að tækin séu ekki lengur virk. Má þar nefna skjái og linsur. Þá er einnig hægt að nýta hluti úr stærri tæki eins og flatskjá, en margt úr honum er endurnýtanlegt.
Í flestum rafhlöðum raftækja er einnig að finna nikkel sem hægt er að nýta til þess að búa til ryðfrítt stál sem er meðal annars notað við framleiðslu á pottum. Þá er plast úr tækjum malað og endurnýtt.
Er hægt að nýta allt úr raftækjum?
Í raun er hægt að nýta mikið úr raftækjum, jafnvel þó að þeir séu skemmd og líti út fyrir að koma ekki að neinu gagni.
Eru spilliefni í raftækjum?
Í öllum tækjum er að finna spilliefni, svo sem blý og arsenik í farsímum. Þá er að finna kvikasilfur og kadmín í tölvum. Þessi efni valda engum skaða þegar tæki eru í notkun en þau geta valdið skaða á umhverfinu, í jarðvegi og í vatni, ef gömlum og ónýtum tækjum er ekki eytt með réttum hætti.
Hvernig getur gamla raftækið öðlast nýtt líf?
Fyrirtækið Græn framtíð annast flutning á raftækjum til vottaðra endurnýtingarfyrirtækja víða um heim. Græn framtíð leggur áherslu á að vinna með löggiltum aðilum í endurnýtingu og endurvinnslu á búnaði sem hafa umhverfisvottanir frá Evrópusambandinu, svo sem tilskipun Evrópusambandsins (Waste Electrical and Electronic Equipment) um rétta meðhöndlun á rafeindaúrgangi.
Legðu umhverfinu lið og gefðu þínu raftæki framhaldslíf. Það er synd að þurfa að henda þegar hægt er að endurnýta.