Hjá fyrirtækjaþjónustu Elko getur þú óskað eftir tilboði vegna magnkaupa, pakkatilboð og fengið sérverð á vöru gegn samnings um framtíðarkaup sem hentar til dæmis vel fyrir rekstrarvörur, blekhylki, rafhlöður, ryksugupoka og fleirra. Hægt er að hafa samband við neðnagreinda sölufulltrúa eða senda fyrirspurn beint af vef.
ELKO er með viðskiptasamning við stærstu raftækjakeðju Norðurlandanna (Elkjöp).Með þátttöku í þessari raftækjakeðju er stuðlað að lægsta raftækjaverði á Íslandi. Keðjan kaupir inn í miklu magni fyrir allar sínar verslanir og dreifir því síðan á milli verslana um alla Evrópu frá einum lager (80.000 m2) og stuðlar þannig að hagkvæmum innkaupum. ELKO á Íslandi er þar engin undantekning og fær sínar vörur sendar af risalagernum í Svíþjóð á viku fresti og er því ávallt með bestu merkin á lægsta mögulega verði. Einnig er Elko í samskiptum við innlenda birgja og er því oftast hægt að komast á móts við viðskiptavini hvað varðar sérpantanir.
Greiðslumöguleikar: Millifærsla, kreditkort, reikningsfært af viðskiptareikningi BYKO (Sjá nánar hér)
Verktakar og fyrirtæki sem huga að magninnkaupum geta sent fyrirspurnir og ósk um tilboð með því að fylla út formið hér að neðan.