
Hér má finna allt sem þú þarft að vita varðandi þjónustu ELKO.
Ferli vöru í ELKO
ELKO er með viðskiptasamning við stærstu raftækjakeðju Norðurlandanna (Elkjöp).Með þátttöku í þessari raftækjakeðju er stuðlað að lægsta raftækjaverði á Íslandi.
Keðjan kaupir inn í miklu magni fyrir allar sínar verslanir og dreifir því síðan á milli verslana um alla Evrópu frá einum lager (80.000 m2) og stuðlar þannig að hagkvæmum innkaupum. ELKO á Íslandi er þar engin undantekning og fær sínar vörur sendar af risalagernum í Svíþjóð vikulega og er því ávallt með bestu merkin á lægsta mögulega verði.
Varan er flutt beint úr skipi á lager okkar í Holtagörðum. Þegar vörur eru loks seldar eru þær innpakkaðar til flutnings. Flutningsaðili tekur svo á móti vörunni sem flytur hana svo beint heim að dyrum kaupanda. Varan er því ekki nema nokkra daga frá útlöndum og heim að dyrum kaupanda.