Aðalhlutverk: Kristen Stewart, Taylor Lautner, Robert Pattinson, Billy Burke, Ashley Greene, Anna Kendrick og Christian Serratos.
New Moon er önnur myndin í Twilight-röðinni og fylgjumst við áfram með Bellu Swan (Kristen Stewart), vampírunni Edward Cullen (Robert Pattison), og félögum og fjandvinum hans í vampíruheiminum. Bella er enn að jafna sig eftir vampíruárás sem kostaði hana næstum því lífið en stefnir að því að halda upp á afmælið sitt með Edward og fjölskyldu hans. Hins vegar verður uppákoma í veislunni til þess að Bella skerst og henni blæðir smávægilega fyrir framan Cullen-fjölskylduna. Þessi næstum því óstjórnlega freisting reynist of erfið sjón fyrir hinar friðelsku Cullen-varmpírur sem ákveða að flytja burt úr bænum til að vernda Bellu og Edward. Þvert gegn óskum Bellu ákveður Edwars að fara með fjölskyldu sinni og yfirgefa Bellu.