Elko hluti af fríðindakerfi Aukakróna Landsbankans. Með því að versla við samstarfsfyrirtæki bankans safna viðskiptavinir Aukakrónum sem þeir geta nýtt til að lækka útgjöld sín. Kerfið er einfalt, söfnunin hröð og þægilegt að skipta yfir í kort með fríðindasöfnun. Yfirlit yfir Aukakrónueign birtist í netbanka. Hægt er að versla með uppsöfnuðum aukakrónum í Elko.
Helstu kostir Aukakrónukerfisins eru:
» Ein Aukakróna jafngildir einni krónu
» Aukakrónur eru alltaf lausar til ráðstöfunar
» Ekki þarf að safna háum fjárhæðum til að nota Aukakrónur
» Fjölmargir öflugir samstarfsaðilar á flestum sviðum verslunar og þjónustu
» Samstarfsaðilar bjóða reglulega sértilboð á vörum og þjónustu til korthafa
» Mánaðarlega fá Aukakrónukorthafar sendar upplýsingar um nýja samstarfsaðila og tilboð
Að auki er hægt að safna Aukakrónum með því að inna af hendi boðgreiðslur með Aukakrónukortinu, t.d. vegna leikskólagjalda, trygginga, fasteignagjalda, orkureikninga og áskrifta að blöðum eða tímaritum svo fátt eitt sé nefnt.