Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Fermingargjafir sem slá í gegn

Það er stór stund í lífi hvers barns þegar það fermist. Á óskalistum fermingarbarna má yfirleitt finna vinsæl raftæki og til þess að einfalda valið þá höfum við tekið saman lista yfir tilvaldar fermingagjafir sem við teljum að muni slá í gegn.

Við viljum að allar fermingagjafir hitti í mark og við höfum því framlengt skilarétti á fermingargjöfum með skilamiða til 30. júní 2024. Mundu eftir að biðja um skilamiða ef þú ert að kaupa gjöf svo fermingarbarnið geti á einfaldan hátt skilað eða skipt gjöfinni en einmitt þannig tryggir þú að gjöfin hitti í mark.

Fermingargjafir til framtíðar

Góð fartölva er fermingargjöf sem fylgir einstaklingum inn í framtíðina. Gott er að huga að áhugasviði við val á fartölvu og skoða þá vel hvort eiginleikar tölvunnar henta einstaklingnum. Dæmi um áhugasvið getur verið leikjaspilun, forritun, tónlistarsköpun, klipping á efni og svo mætti lengi telja. Leyfðu okkur að aðstoða þig við valið á réttu tölvunni en hér að neðan eru nokkur dæmi um fartölvur sem við mælum með. Listinn er þó ekki tæmandi og hægt að finna úrval fartölva bæði í leitarvélinni og veftré.

Fermingar - vinsælir vöruflokkar

Snyrting og heilsa

Á fermingaraldri fara einstaklingar að pæla enn meira í snyrtingu og heilsu. Mikilvægt er að sinna húðumhirðu vel allt frá fermingaraldri og jafnvel fyrr. Snyrtivörur fara einnig að taka yfir skápana á þessum aldri og því að mörgu að huga. Hér að neðan eru dæmi um vörur úr ELKO tengdar snyrtingu, heilsu og húðumhirðu sem við teljum að muni slá í gegn í fermingarpakkanum í ár.

Fermingargreiðslan

Fermingargreiðslan skiptir öllu máli en með réttu græjunum er hægt að fullkomna greiðsluna aftur og aftur og eiga þannig góða hárdaga alla daga ársins. Úrvalið í hárvörum er alltaf að aukast og geta einstaklingar nú á einfaldan hátt mótað og formað hárið að vild. Hvort sem um er að ræða, krullur, liði, slétt hár eða bara blástur sem gefur hárinu aðeins meira líf þá eru til hárvörur sem einfalda þér lífið. Hér að neðan finnur þú allt til þess að gera hina fullkomnu hárgreiðslu fyrir hvaða tilefni sem er.

Hárformunartæki á borð við Dyson Airwrap og Shart Flex Style hafa vaxið gríðarlega í vinsældum síðastliðin ár og eru þessar vörur á allra vörum þegar það kemur að hárvörum. Um er að ræða mjög eigulegar vörur sem geta einfaldlega fullkonað fermingargreiðsluna í ár og haldið áfram að nýtast fyrir hin ýmsu tilefni framtíðarinnar.

Leikjatölvur og jaðarbúnaður

Leikjatölvur eru sívinsæl fermingargjöf og er úrval leikjatölva alltaf að aukast. PlayStation5 er vinsælasta leikjatölvan í dag en á móti henni eru Xbox og Switch einnig gríðarlega vinsælar. Sýndarveruleikinn hefur einnig verið að ryðja sér rúms með flottum græjum frá bæði Meta og PlayStation og nú á síðastliðnum misserum hafa handheldar leikjatölvur verið að koma sterkar inn þar sem hægt er að taka alla leikina með sér hvert sem er.

Fermingargjafir fyrir alla

Þú finnur úrval fermingargjafa í elko og á elko.is og starfsfólk okkar er tilbúið til þess að aðstoða þig við að finna réttu fermingargjöfina sem hittir í mark. Úrvalið á lendingarsíðunni er einungis til aðstoðar, ef þú ert að leita að öðrum eða sambærilegum gjöfum þá hvetjum við þig til þess að nota leitarvélina þar sem leita má eftir, vörum, vörumerkjum, litum og lagerstöðu. Mundu svo bara að biðja um skilamiða á fermingargjöfina þegar þú klárar kaupin á elko.is eða í verslun. Hægt er að skila og skipta fermingargjöfum út júní 2024.

Að velja réttu heyrnartólin

Hvort sem þú ert að slappa af heima, stunda íþróttir, ganga eða taka strætó í skólann eða á leiðinni í flug þvert yfir Atlantshafið þá geta góð heyrnatól alltaf gert lífið skemmtilegra. Val á góðum heyrnartólum getur farið algjörlega eftir því hvað þú ert að hlusta á og við hvaða aðstæður þú ætlar að nota heyrnartólin.

Heyrnartól sem eru ætluð til notkunar við mikla hreyfingu þurfa að vera létt, sitja vel á eyranu og eiga möguleika á að hleypa umhverfishljóðum að. Heyrnartól sem eru notuð við heimanámið eða í flugi þarfnast hugsanlega betri hljóðeinangrunar og heyrnartól sem eru notuð á leið í eða úr skóla þurfa að pakkast vel svo auðvelt sé að ganga frá þeim þegar þau eru ekki í notkun.

ELKO býður upp á úrval heyrnartóla í eða á eyru og er starfsfólk okkar reiðubúið til þess að aðstoða þig við að finna réttu heyrnartólin.

Að byrja að streyma

Tölvuleikjastreymi eru alltaf að verða vinsælli skemmtun sem gríðarlega margir horfa á , á hverjum degi. Margir eiga sér fyrirmyndir sem þeir hafa keynnst í gegnum streymi á streymisveitum eins og Twitch, Youtube eða öðrum miðlum eins og til að mynda E-sports rásinni hjá Sýn þar sem finna má þætti á íslensku eins og Game Tíví, Babe Patrol, Gameveran og fleiri vinsæla þætti.

Með auknu áhorfi er fjöldi þeirra sem streyma sínu eigin efni alltaf að aukast og sífellt fleiri farnir að koma sér upp aðstæðu heima fyrir til þess að streyma efni. Til þess að byrja gott streymi þarf að huga að hlutum eins og hljóði, lýsingu, myndgæðum og stjórnborði sem stýrir því hverju er verið að streyma hverju sinni. Þegar það kemur að góðu streymi þá er gott að huga að því að vera jákvæður, hafa gaman og svo bara að æfa sig.

Við aðstoðum þig við að velja réttu streymisgræjurnar og getum aðstoðað við val á rétta búnaðnum fyrir byrjendur og lengra komna.

Samanburður